PJÖTLURNAR 
    <language>is</language>
Fréttir
      <description>                     15. ágúst 2011 Kæru bútasaumskonur.                                                                                               Fyrsti fundur vetrarins verður í Grunnskólanum í Súðavík 3. september 2011.   Starfið mun verða með svipuðum hætti og undanfarin ár, með smá breytingum þar sem við erum með nýtt húsnæði á Ísafirði, Kiwanishúsið Sigurðarbúð, einnig byrjum við starfið mánuði fyrr. Á vinnufundum á matarnefndin að sjá um að opna húsið og kaffinefndin að ganga frá og loka húsinu. Hver kona á að ganga frá við sitt borð. Í upphafi fundarins laugardaginn 3. september er ætlunin að fara lauslega yfir starfið sem framundan er í vetur. Eins og þið vitið þá stendur yfir skráning í saumabúðir í Reykjanesi 30. september - 2. október 2011 og vonumst við til að sem flestar láti sjá sig þar í brjáluðu saumaskapi. J.  Félagsgjaldið er kr. 3000 og verða sendir út greiðsluseðlar vegna félagsgjaldanna.  Þeir munu falla úr gildi þann 17. október 2011 og þarf því að vera búið að greiða fyrir þann tíma. Hafi það ekki verið gert verður litið svo á að viðkomandi hafi sagt sig úr klúbbnum. Aðalfundur félagsins verður laugardaginn 7. janúar 2012. Vinnufundir í vetur verða frá kl. 10:00 til 17:00  </description>
Jólasýning
      <description>Bútasaumsklúbburinn Pjötlunar  Bútasaumssýning með jólaþema í Safnahúsinu á Ísafirði.   Kæru bútasaumskonur.Nú leitum við stjórnin til ykkar og biðjum ykkur um jólastykki sem við ætlum að setja á sýninguna. Við höfum fengið Safnahúsið á Ísafirði frá föstudeginum 26. nóv til föstudagsins 3. desember 2010.  Það er von okkar að sem flestar láni teppi, dúka, jólapoka og fleiri stykki/muni, til þess að sýningin verði sem glæsilegust.    Við biðjum ykkur að skila stykkjunum/mununum ykkar til einhverrar okkar   VEL MERKTUM á miðvikudag 24/11 og fimmtudag 25/11.     Skila til okkar:  Þórhildur Björns. Höfðastíg 12.  Bolungarvík  Sóley Sævars. Traðarlandi 5.  Bolungarvík  Jóna Kristín.   Seljarlandi 7. Ísafirði     Við munum skila sýningarstykkjunum/mununum aftur til ykkar sem verða á saumafundinum 4. des. eða koma þeim heim til ykkar.  Kærar kveðjur   Stjórnin   </description>
hér
      <description>SaumabúðirHaust 2010Skráning hafin í saumabúðirnar  !!!Reykjanes við Ísafjarðadjúp24. - 26. SeptemberVið bjóðum ykkur tvö saumahelgarverkefni sem þið getið tekið þátt í ef þið viljið en það er ekki skylda.Hver og ein getur líka unnið að því sem hún vill.Óvissuverkefni á föstudagskvöldinu.Verð á helginni miðast við gistingu í tvær nætur og fæði, ásamt aðstoð við saumaskapinn.Bót.is verður með verslun á staðnum fyrir ykkur sem vilja.Skráning á anna@bot.is-</description>
Fréttir 
      <description>   Sælar allar Pjötlur.Á leið til okkar er spennandi heimsókn og vona ég að þið gefið ykkur tíma til að lesa bréfið hér fyrir neðan.  Við ætlum að hitta Önnu Margréti á Hótel Ísafirði n.k. mánudag  14.  júní kl. 18:00 yfir súpu. Kostnaðurinn  er kr. 1000- fyrir súpu, brauð og kaffi.  Gott ef þið gætuð póstað á mig til baka hvort þið komið á fundinn til að geta gefið upp fjöldann í súpuna.  Kveðja Helga  Sælar ágætu bútasaumskonur á Vestfjörðum         Ég er formaður afmælisnefndar Íslenska bútasaumsfélagsins sem fagnar tíu ára afmæli sínu á árinu með kynningarstarfi á bútasaumi og félaginu, veglegri afmælishátíð í Perlunni 10.-19. september og Hátíðarkvöldi með góðum mat og skemmtiatriðum í hinum klassíska og glæsilega Súlnasal Hótels Sögu þann 18. september - næst síðasta dag afmælishátíðarinnar.         Það væri mér sönn ánægja að fá tækifæri til að hitta Pjötlurnar og Spólurnar líka sama kvöld ef það er þeim fært - og mánudagskvöldið næsta á Hótel Ísafirði í súpu og kaffisopa líst mér stórvel á.          Það sem ég hef að bjóða - en ég ætla mér ekki það afrek að kenna bútasaum á fundinum! svo það sé nú alveg á hreinu:o)       Trunk Show - Kynning upp úr kofortinu - Stór plastskassi úr RL Magasin geymir söguteppi sem ég segi ykkur frá og fleira áhugavert dót leynist þar líka   Í farteskinu eru nokkrar áhugaverðar bækur og ég ræði þær og bóka- og tímaritakaup í bútasaumi - velkomið að skoða þær!   Ég er með mína eigin verkfæra- og nauðsynjatösku og kynni hana og dótið í henni líka - hún hefur slegið í gegn!   Dagskrá afmælisárs Íslenska bútasaumsfélagins hefur verið og verður í haust áhugaverð og mér er sérstök ánægja að segja ykkur allt um það   Saumuð sýnishorn af nýja sniðinu í Fréttabréfi Íb sem ætti að vera að berast félagsfólki núna í vikunni.   Kynningar- og tilboðspakki frá Íslenska bútasaumsfélaginu og styrktaraðilum okkar á afmælisárínu - Gjöf frá Íslenska bútasaumsfélaginu fyrir skráningu á FB   Meðferðis eru nokkar af söluvörum félagsins sem kosta     Ný postulínsfingurbjörg merkt félaginu - 1000.- ákaflega vel heppnuð, björt og falleg sem við létum framleiða á Englandi - English Bone China   Nýtt málmband í vinkonu- og leynivinagjafir á saumafundum - bæði cm og tommur - 500,- og flott í vasann í búðum   Lukkumiðar á Afmælisteppi Íslenska bútasaumsfélagins - Emeraldar - en það er saumað af Margréti Árnadóttur í Virku og stungið af Sæunni Thorarensen hjá vélstungufyrirtækinu Við-bót, en þær stöllur gáfu alla vinnu við verkið og félagskonur Íb gáfu efnin í blokkirnar en grunnur og bak var keypt af félaginu í Virku   Póstkort frá Íslandsteppasýningu félagsins 2003 - 500,- - Þau eru aðeins til í takmörkuðu upplægi og eru afar falleg og vinsæl   Happdrætti þar sem vinningar hafa fræðslugildi og eru "grænir" og einnig fallegur glaðningur frá félaginu          Vinsamlega hafið með peninga ef þið viljið versla við mig því ég er ekki með posa EN einnig verður hægt að millifæra á félagið ef það hentar betur     Þið fáið þá vörurnar hjá mér og millifærið þá eftir á     Semsagt - svona sitt lítið af hverju      Ég er þegar búin að halda fjölda kynninga á bútasaumi og félaginu á handverks- og prjónakaffifundum víðsvegar um stór-Reykavíkursvæðið í vetur og vor en einnig hefur félagið sjálft staðið fyrir fundum á Akureyri, Selfossi, Egilsstöðum og í Grindavík með frábærum stuðningi heimamanna en einnig var ég gestur á slútti hjá Sprettum á Fáskrúðsfirði í maí.      Þið ráðið - ég mæti!     Bestu kveðjur - Anna Margrét Árnadóttir     formaður afmælisnefndar Íb 2010     861 4144 </description>
Hetjuteppi 
      <description>Kæra Bútasaumskona!Búið er að setja uppskriftinna af blokkunum sem við notum í hetjuteppin undir liðnum Hetjuteppi hér á síðuni. Kv Sveina </description>
Suðreyri
      <description>Kæra Bútasaumskona!  Þá er komið að aprílfundinum, sem verður  í Bjarnaborg, Suðureyri 10. Apríl nk.  Verkefnið sem við ætlum að vera með er lítill ferningur með hjarta undir heitt J   Í verkefnið þarf:  Í hjartað:  9 stk 2"x 2" ferninga og 2stk  5"x5" ferninga í bogan    Grunnefni:                                 1 ferning 6 ½"x 6 ½"  1 ferning 7 ½"x 7 ½"  Binding: 2 ¼" eða  2 ½" ca 40"  Bak  10"x10" ferning   Á milli gamalt handklæði og  afganga af vatti.      Hlökkum til að sjá ykkur.  Bestu kveðjur  Ágústa og Sigrún  Suðureyri</description>
Óvissuverkefni 2010
      <description>Sælar stelpur !     Þá er komið að því.  Við verðum í Guðmundarbúð 6. febrúar nk.  Mest spennandi fundur vetrarins framundan. Óvissuverkefnið.  Nú vitum við það sem þið vitið ekki !!! J       Efnisþörfin í verkefnið er:   Fallegt efni                                                        55 cm.Lítið efni sem tónar vel við fallega efnið             15 cm.Ljótt efni                                                          60 cmBómullar- eða dúkavatt                                     46 cm x 75 cmLjóst grunnefni (ekki of ljóst)                            10 cm       Þið eigið allar box með ýmisskonar smá ræmum og bútum. Þið eigið að taka það með ykkur því það eru aðalefnin.     Fallegan tvinna til að stinga með (vélstunga).     Takið líka með ykkur töluboxið.     Svo þarf náttúrulega mottu, stiku, hníf, saumavél og tilheyrandi. Muniðeftir að taka með fjöltengi.  Og að sjálfsögðu verður góða skapið að vera með.     Takið líka aukaverkefni með til að vinna milli verkhluta í óvissuverkefninu.     Að vanda er ekki skylda að gera óvissuverkefnið.      Hittumst hressar og sem flestar í Guðmundarbúð á Ísafirði 6. febrúar nk.                              Bestu kveðjur                                                   Jóhanna og Guðbjörg</description>
Jólaverkefni
      <description>Sælar allar Pjötlur.  Þá er það jólaverkefnið sem verður saumað í Bolungarvík laugardaginn 7. nóvember. Verkefnið er löber/dúkur með jólastjörnu saumað úr crazy-bjálka. Stærð löbersins er 15" x 47 ½ ".   Tilvalið er að nota afgangsræmur og búta í bjálkana.Jólastjörnur eru stundum með hvít blóm, með bleik blóm, fyrir utan þessar venjulegu með rauðu blómin.  Í sjálft blómið þarf:              í miðjuna                4 stk. 7" x 7"  í sama eða líkum litumí blómið                  1 ½"- 2" breiðar ræmur, minnst 9" og síðan                                    lengri og lengri, 16 - 20 stk. Líkir litir, dekkri en                                                                                                               miðjan.  Í laufblöð þarf:              allskonar græna liti    ca. 1 ½ - 3" breiðar ræmur                           13" langar og lengri, 16 - 20  stk.   Í bakgrunn þarf:    Lauslega áætlað þarf 15-20 ræmur fyrir hvert blóm, þ.e. í allt  45 - 60 ræmur.  Gjarnan breiðari en ræmurnar í  blómum og blöðum,  lengd minnst 9".  Fallegt er að nota smávegis af sama efni og notað er í bindinguna.  Millifóður              17" x 50" (eða 40 x 125 cm )Bak                        17" x 50" (eða 40 x 125 cm )       Binding                 ca. 125"  (eða 330 cm) lengd (breidd 1 ½ " eða 2 ½  ")                                                                               Með Pjötlukveðju                                                                                      Gréta </description>
Hauststarf
      <description>   Kæru bútasaumskonur !                                                                                                  Á þessu hausti byrjum við starfið með saumabúðum 25. - 27. september 2009  í Reykjanesi, sjá auglýsingu á forsíðu.  Siðan ætlum við áfram að hittast fyrsta laugardag í mánuði til skiptis í Slysavarnarhúsinu í Bolungarvík og í Guðmundarbúð á Ísafirði.    Fyrsti fundur vetrarins verður í Guðmundarbúð laugardaginn 3. október 2009.    Starfið mun verða með sama hætti og undanfarin ár.  Í upphafi fundarins laugardaginn 3. október er ætlunin að fara lauslega yfir starfið sem framundan er í vetur.  Félagsgjaldið er kr. 3000 og verða sendir út greiðsluseðlar vegna félagsgjaldanna.  Þeir munu falla úr gildi þann 15. október 2009 og þarf því að vera búið að greiða fyrir þann tíma. Hafi það ekki verið gert verður litið svo á að viðkomandi hafi sagt sig úr klúbbnum.   Dagskrá vetrarins er kominn inn og einnig kaffinefndin. </description>
Saumabúðir í Reykjanesi
      <description>  Sæl allra pjötlur fær og nær. Hér kemur póstur sem þið hafið eflaust lengi beðið eftir.  Saumabúðir verða í Reykjanesi við  Ísafjarðardjúp dagana 25. - 27. september næstkomandi. Ferðaþjónustan í Reykjanesi býður gistingu og fæði alla helgina og kostar það kr. 15.000- í svefnpokaplássi en kr. 18.000- í uppábúnu rúmi. Innifalið er, auk gistingar, fæði frá kvöldmat á föstudegi til eftirmiðdags á sunnudegi auk  aðgangs að sundlauginni. Anna Guðný í bot.is mun koma og vera með verkefni og kostar það kr. 7000- auk efnis.     bot.is kemur einnig með úrval efna og áhalda úr verslun sinni líkt og síðasta haust.  Hvetjum byrjendur jafnt sem lengra koma til að kynna sér málið og/eða skrá sig fyrir 1. september.      Skráning  er hjá Helgu s. 4567525 / 6950211 eða  hej@hive.is og   Þórhildi 4567477 / 8990757 eða boda@simnet.is     </description>
Quiltbúðin
      <description>  Bútasaumur - Handavinna - Garn    Verðum  að Aðalstræti 24 (áður skóbúð)  Laugardaginn 2 maí frá 10-17  Sunnudaginn 3 maí frá  11-15    Quiltbúðin   Sími 461-2241/892-6711  www.quiltbudin.is             Endilega hafið samband við mig ef það er eitthvað sérstakt sem þið viljið að ég komi með :-)Hlakka til að sjá ykkur sem flestar.Bestu kveðjur,  Kristrún  </description>
Núpur 
      <description>                                                       Ágætu bútasaumskonur!                                                            Ágætu bútasaumskonur!Núpur 2009 Mæting á Núpi  er upp úr hádegi  á föstudeginum  8. maí  og farið heim aftur seinnipart laugardags. Gert er ráð fyrir því að þið sjáið ykkur sjálfar fyrir fari. Saumað, borðað og gist verður í Héraðsskólahúsinu.  Kostnaður félagskvenna við ferðina er kr. 10.000.- innifalið er gisting, kvöldverður á föstudegi, morgunmatur, hádegis-og miðdegishressing á laugardegi. Það þarf að koma með allt til að sofa með (sæng,kodda,rúmföt) handklæði og annað það sem tilheyrir skemmtiferðum.  Þátttökugjald greiðist við komuna og það þarf að staðgreiða (engin kort)  Ágústa Gísladóttir mun sjá um að innheimta gjaldið á föstudag.  Einnig er hægt að greiða inn á banka 1114-05-401302 kt: 040347-4539, greiðslan verður þá að vera komin inn á bankann á miðvikudeginum 06.05.08.  Á föstudeginum verður sett saman  hetjuteppi, sem búið er að sauma blokkir í. Ætlunin er að setja saman í krakkateppi og því er óskað eftir að bjálkinn verði lítríkur þ.e. litaði hlutinn en hinn ljós grunnur. Hægt er að skila blokkum á Núpi. Mjög mikilvægt er að blokkirnar séu í þeirri stærð sem gefin er upp í uppskriftinni. Jóhanna og Sunna munu hafa umsjón með samsetningunni.  Í ár verður pjötlupottur, þær sem vilja taka þátt koma með 6" efnispjötlur, sem settar verða í pott, síðan verður dregið um pottinn og sú sem hreppir pjötlurnar ræður hvað hún gerir við þær, engar kvaðir.  Endilega komið með verkin ykkar til að sýna okkur hinum og ekki má gleyma léttu skemmtiefni fyrir föstudagskvöldið, öllum frjálst að troða upp. Svo er bara að taka með sér nóg af verkefnum.  ·        Skráning til 1. maí hjá:  Ágústu  S. 893-0860 agusta@icelandicsaga.is,  Guðrún Hreinsdóttir gunna@frosti.is, Kristínu Hreinsd. 866-9869, Helgu hej@hive.is                                        Bestu kveðjur                                            Stjórnin.   </description>
Suðureyri 
      <description>Fundurinn á Suðureyri verður í Bjarnaborg 28. Mars 2009 frá kl.10.oo til 17.oo.Sjá upplýsingar um verkefni hér </description>
Hetjuteppi 
      <description> Sælar pjötlur  Stefnum að því að setja saman hetjuteppi í saumabúðunum að Núpi í maí. Óskum því eftir blokkum í líflegum litum (krakkalegum ekki samt smábarna) þ.e. eftir kerfinu sem við höfum haft á hetjuteppunum. Þær ykkar sem ekki eiga uppskriftir að blokkunum geta nálgast þær á Suðureyri á næstu saumahelgi.  Kveðja Stjórnin.   </description>
Núpur 2009 
      <description>  Nú er komið að því að við fjölmennum á Núp. Að þessu sinni verðum við helgina 8. -9. maí. Kostnaður er kr: 11.000,- en klúbburinn mun greið niður fyrir félagskonur. Innifalið er saumaaðstaða, gisting, kvöldverður á föstudag, morgunverður, hádegisverður og síðdegishressing á laugardegi. Nú er um að gera að taka þessa helgi frá og fjölmenn með saumadótið og góða skapið.  Hægt er að skrá sig hjá Helgu með því að smella hér.   </description>
Nauðstaddir í Ástralíu 
      <description>Saumum blokkir og sendum þeim sem eiga um sárt að binda vegna eldanna í Ástralíu. Sjá frekar  HÉR.</description>
Óvissu verkefni 2009
      <description>     Sælar stelpur  Þá er komið að þessu árlega óvissu verkefni .     Það  sem  þarf  er ......  1,1/2" lengjur  af þremur litum sem tóna vel saman   12,1/2" x 10,1/2" bút af öðru efni og vatt jafn stórt.  2,1/2" x 36" af ská skornu efni sem tónar við eitthvað  af þessum efnum.  Komið þið svo með búta því að við ætlum  að gera litla mynd sem er ekki stærri en 5"x5".   Straulím u.þ.b. 10x40cm eða flíselín ef  þið viljið frekar applíkera myndina.  Blýant ,  lófafylli af tróði , 1 litla smellu og  2 tölur sem passa við efnin.  Svo bara þetta venjulega saumavél , og allt sem fylgir henni. Einnig þarf að koma með fullt af góðu skapi og þolinmæði.      Hlökkum til að sjá ykkur.   Kveðja Sóley og Lára        </description>
Gleðilegt bútasaumsár
      <description>   Fyrsti saumadagur ársins verður í Guðmundarbúð á laugardaginn 10. jan. kl. 10 - 17.         Ágústa ætlar að vera með örnámskeið í gerð ástarhnútsins. Þær sem eiga muni með því munstri mættu gjarnan kippa þeim með sér, svona til sýnis fyrir þær sem ekki þekkja munstrið.Í hádeginu á laugardaginn verðum við með örfund og ræðum meðal annars saumahelgi að Núpi.....    Sjáumst hressar á laugardaginn</description>
Jólaverkefni 2008 
      <description>  Hittumst á Ísafirði í  Guðmundarbúð laugardaginn 1. nóv kl. 10 - 17 og  saumum jólatré eða hjörtu eða bara bæði.  Þú þarft að koma með efnisbúta sem þér finnst henta í þessi stykki.  Í hjörtun duga tveir bútar sem eru 6 X 8 tommur hvor. Snúrur/bönd til að hengja upp með.  Í trén eru heldur minni bútar en fer þó eftir hve marga liti þú vilt hafa í þeim. Ef tré verður einlitt þá ætti bútur 8 X 12 tommur að duga + smápjatla af brúnu í stofn.  Litlar perlur til skrauts og  snúrur/bönd til að hengja upp með.  Einnig þarftu að hafa meðferðis nauðsynleg saumaáhöld en þetta er saumað í höndum. Flíselín verður á staðnum.   Auðvitað er frjálst að taka þátt í jólaverkefninu, annars koma konur þá með sín verkefni og áhöld sem til þarf.  Aðalatriðið er að muna eftir saumagleðinni og góða skapinu.                                                                        Kveðja stjórnin  </description>
Námskeið 
      <description>Bútasaumsnámskeið Bútasaumsklúbburinn Pjötlurnar stendur fyrir námskeiði í bútasaum helgina 27. - 28. sept. í Guðmundarbúð. Kennarar koma frá bót.is og verður fyrkomilagið eftirfarandi: Laugardagur kl: 10 - 13Bogasaumsnámskeið Gert er stykki sem er u.þ.b. 100x100 cm Námskeiðið er frítt greitt er fyrir efni, snið og skapalón sem er kr. 8.900,-HádegishléLaugardagur kl: 14 - 16 Crazyquilt.Gert er stykki sem gæti verið púðaborð, miða í teppi eða mynd. Námskeiði er frítt greitt er fyrir efni og kennslugögn kr. 6.000,- Laugardagur kl: 16Kviltering á vél, kynntar verða aðferðir, áhöld og ýmis tækni. Hægt er að skrá sig á bæði námskeiðin eða bara annað, hentar öllum sem kunna á saumvél. Kynningin á vélkvilteringu er öllum opin. Sunnudagur kl:10 Saumadagur hefst kl. 10 og saumað verður fram eftir degi. Ekkert þátttökugjald er þannan dag en ætlast er til að þátttakendur versli verkefni á staðnum. Hægt verður að velja úr allskonar pakkningum. Kjörið fyrir byrjendur í bútasaum og lengra komna. Frekari upplýsingar og skráning fyrir 20. sept. Ágústa agusta@icelandicsaga.is - s. 890860Guðrún gunna@frosti.is - s. 456-3727Helga hej@hive.is - s. 6950121Kristín stina@snerpa.is - s. 866- 9869                  </description>
Núpsbréf 
      <description>Ágætu bútasaumskonur!        Mæting á Núpi  er upp úr hádegi  á föstudegi og farið heim aftur seinnipart laugardags. Gert er ráð fyrir því að þið sjáið ykkur sjálfar fyrir fari. Saumað, borðað og gist verður í Héraðsskólahúsinu, kostnaður við ferðina er kr. 7.500.-innifalið er gisting, kvöldverður á föstudegi, morgunmatur, hádegis-og miðdegishressing á laugardegi. Það þarf að koma með allt til að sofa með (sæng,kodda,rúmföt) handklæði og annað það sem tilheyrir skemmtiferðum.        Þátttökugjald greiðist við komuna og það þarf að staðgreiða (engin kort) Ágústa Gísladóttir mun sjá um að innheimta gjaldið á föstudag. Einnig er hægt að gr. inn á banka 1114-05-401302 kt: 040347-4539, greiðslan verður þá að vera komin inn á bankann á miðvikudeginum 23.04.08.    Við fáum góðan gest að sunnan, Sæa sem stungið hefur hetjuteppin fyrir okkur, verður gestur okkar um helgina.Á föstudeginum verður sett saman eitt hetjuteppi, sem búið er að sauma blokkir í, Sunna og Jóhanna hafa umsjón með  því.      Ingileif verður með kennslu  á skemmtilegri blokk  á laugardagsmorguninn Kl. 10.oo. Í blokkina eru notaðar ræmur sem geta verið frá 1?t. til 2 ½ t. á breydd.  Fínt að nota afgangsræmur.        Í ár verður pjötlupottur, þær sem vilja taka þátt koma með 6? efnispjötlur, sem settar verða í pott, síðan verður dregið um pottinn og sú sem hreppir pjötlurnar ræður hvað hún gerir við þær, engar kvaðir.    Endilega komið með verkin ykkar til að sýna okkur hinum og ekki má gleyma léttu skemmtiefni fyrir föstudagskvöldið, öllum frjálst að troða upp. Svo er bara að taka með sér nóg af verkefnum.  Skráning til 19.apríl hjá:  Ágústu  S. 893-0860 agusta@icelandicsaga.isKristínu Hreinsd. 866-9869, Helgu hej@hive.is                                          Bestu kveðjur                                            Stjórnin.  </description>
Núpur
      <description>    Núpur    Saumahelgin að Núpi  verður 25. og 26. apríl n.k. Af óviðráðanlegum orsökum er saumahelgin viku fyrr  en venjulega,     Kostnaður pr. konu er 8000-kr.  og niðurgreiðir klúbburinn um 500-kr. fyrir hverja félagskonu (7500- kr.  greiðist við komu).    Saumað, borðað og gist  verður í Héraðsskólahúsinu. Innifalið  er gisting, kvöldverður á  föstudegi, morgunmatur, hádegis- og miðdegishressing á laugadegi.     Auk saumaútbúnaðarins  þarf að koma með allt til  að sofa með (sæng, kodda og rúmföt), handklæði og annað það sem tilheyrir  skemmtiferðum.        Skráning til 18. apríl hjá Kristínu Hreinsd s. 8669869, Ágústu s. 8930860  og hej@hive.is (Helga)Stjórnin    </description>
Suðureyri. 
      <description>    Saumadagur á Suðureyri í Bjarnarborg laugardaginn 5.  apríl kl. 10 ? 17. Verkefni dagsins er pottaleppur, fyrir þær sem vilja taka  þátt í því.    Bréf  með frekari upplýsingum, ætti að berast þessa  dagana.   Hlökkum til að sjá ykkur, Ágústa og Sigrún.            Fyrir þær sem ætla að gera pottaleppa þá er  þetta það sem þarf í þá:   Hvert stykki er 8" x 8"Miðjuefnið  er ca 5" x 5", mjóa röndin er 1" og breiðari kanturinn sem er  sama efni og bakið er ca 1,5".Eftir  páska sendum við ykkur aprílbréfið með upplýsingum um apríl fundinn og Núp.    </description>
Pjötlu óvissa.
      <description>Þá er komið að því.   Óvissuverkefni  í ár verður á  Ísafirði laugardaginn 2. febrúar í Guðmundarbúð. Það sem þú þarft að hafa  meðferðis í verkefnið: -         4 liti sem þér finnst fara vel saman.  Þú þarft u.þ.b. 5 tommur af hverjum lit ífullri efnisbreidd. Þó er alveg  hægt að nota búta, þín útsjónarsemi ?? -         Bómullarvatt u.þ.b. 12  X 12  tommur -         Bakefni u.þ.b. svipuð stærð og á  vatti Hefðbundinn útbúnað fyrir saumadag s.s. saumavél og  tilheyrandi, áhöld til skurðar, eigin verkefni, blöð, bækur, góða skapið og svo  framvegis.Núpur,  stefnt að saumahelgi í vor, ræðum það á saumafundinum 2. feb. </description>
Kaffinefndir 
      <description>   Nú hefur verið tekinn upp sá háttur með kaffinefndir að setja allar félagskonur í einn hóp burtséð frá því hvar þær eiga lögheimili og kaffinefndir skipaðar út þessum lista.  Þannig geta ísfirskar og/eða bolvískar konur verið saman í kaffinefnd í Bolungarvík á Ísafirði eða á Suðureyri. Með þessu gengur jafnt yfir allar í klúbbnum því fjöldi félagskvenna á Ísafirði er helmingi meiri en í Bolungarvík en samt eru jafnmargir fundir á hvorum stað. Félagskonur eru það margar að þær eiga ekki aðþurfa að vera í kaffinefnd nema á tveggja til tveggja og hálfs árs fresti. Hádegiskonurnar sjá um að laga kaffi og kom því og matnum á borðið í hádeginu og ganga síða frá og vaka upp. Kaffikonurnar sjá um að laga kafi og koma því og kaffibrauðinu á borðið í kaffitímanum og ganga síðan frá á eftir og vaska upp.Listi yfir kaffinefndir veturinn 2007 - 2008 er hér.  </description>
Vetrarstarfið 
      <description> Kæru bútasaumskonur !  Þá fer vetrarstarfið að byrja. Við ætlum áfram að hittast fyrsta laugardag í mánuði til skiptis í Slysavarnarhúsinu í Bolungarvík og í Guðmundarbúð á Ísafirði. Fyrsti fundur vetrarins verður á Ísafirði laugardaginn 6. október. Einnig er rágert að fara á Suðureyri 5. apríl. Starfið mun vera með sama hætti og undanfarin ár. Í upphafi fundarins laugardaginn 6. október er ætlunin að fara lauslega yfir starfið sem framundan er í vetur.   Dagskrá vetrarins er hægt að finna undir Dagskrá hér á síðunni.   </description>