Forsíða
Súðavík, 13. apríl 2024
Bútasaumsklúbburinn Pjötlurnar auglýsir
Saumabúðir í Reykjanesi 1.-5. maí 2024.
Saumabúðir á vegum Pjatlanna verða haldnar í Reykjanesi við Djúp
dagana 1. – 5. maí 2024.
Mæting er frjáls, á miðvikudegi, fimmtudegi, föstudegi eða laugardegi.
Kostnaður er þessi í tveggja manna herbergi; ( Ein í herbergi innan sviga. )
Ef mætt er á föstudegi fyrir kaffi kr. 54.600.- ( 62.600.- )
Ef mætt er á fimmtudegi fyrir kaffi kr. 73.700.- ( 84.200.- )
Ef mætt er á miðvikudegi (léttur kvöldverður innifalinn) kr. 90.100.- ( 103.100.- )
Verð miðast við uppábúin rúm. Og ef mætt er fyrr þessa daga bætast við aukamáltíðir.
Jóhanna Viborg og Una verða með búðina Bóthildi frá föstudegi til laugardags.
Skráning er á hestur@simnet.is eða í síma 893-4756.
Skráningarfrestur er til og með 22. apríl n.k.
Taka skal fram við bókun, hverjar vilja vera saman í herbergi, ef óskað
er, og hvaða dag áætlað er að mæta í Reykjanes.
Saumabúðirnar eru opnar öllum bútasaumskonum.
- Ef einhverjar fyrirspurnir eru eða spurningar vakna getið þið leitað upplýsinga hjá
Oddnýju í síma 893-4756 eða á hestur@simnet.is
Dagskráin verður auglýst síðar til þeirra
sem skrá sig í saumabúðirnar.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar.
Stjórnin
|
||||