01.07.2009 17:21
Saumabúðir í Reykjanesi
Sæl allra pjötlur fær og nær. Hér kemur póstur sem þið hafið eflaust lengi beðið eftir.
Saumabúðir verða í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp dagana 25. - 27. september næstkomandi. Ferðaþjónustan í Reykjanesi býður gistingu og fæði alla helgina og kostar það kr. 15.000- í svefnpokaplássi en kr. 18.000- í uppábúnu rúmi. Innifalið er, auk gistingar, fæði frá kvöldmat á föstudegi til eftirmiðdags á sunnudegi auk aðgangs að sundlauginni. Anna Guðný í bot.is mun koma og vera með verkefni og kostar það kr. 7000- auk efnis.
bot.is kemur einnig með úrval efna og áhalda úr verslun sinni líkt og síðasta haust.
Hvetjum byrjendur jafnt sem lengra koma til að kynna sér málið og/eða skrá sig fyrir 1. september.
Skráning er hjá Helgu s. 4567525 / 6950211 eða hej@hive.is og
Þórhildi 4567477 / 8990757 eða boda@simnet.is